Klæðum landið skógi
Skógræktarfélag Íslands er landssamband skógræktarfélaganna í landinu. Síðan 1930 hafa félögin ræktað skóga um land allt og opnað þá almenningi til útivistar og yndis.
Stofnað á Þingvöllum
Skógræktarfélag Íslands stofnað 27. júní 1930 á Alþingishátíðinni.
Finndu þitt skógræktarfélag
Skógræktarfélögin starfa um allt land og hvert þeirra á sína skógarreiti. Leitaðu eftir bæ, félagi eða reit.
65 félög
Smelltu á punkt á kortinu eða veldu félag úr listanum til að sjá formann, skógarreiti og hvernig þú getur gengið í félagið.
Gakktu í skógræktarfélag
Með aðild að skógræktarfélagi leggur þú góðu málefni lið og færð:
- Rafrænt félagsskírteini í símann með afslætti hjá völdum fyrirtækjum
- Aðgang að félags- og fræðslustarfi, skógargöngum og fundum
- Laufblaðið, fréttablað skógræktarfélaganna, og fræðslubæklinga
Árgjald er mismunandi eftir félögum en er iðulega á bilinu tvö til fjögur þúsund krónur.
Ganga í félagAfsláttur með félagsskírteininu
- 66°N10%
- Blómaval10%
- Flóra garðyrkjustöð10%
- Garðheimar (almennar vörur)10%
- Gróðrarstöðin Mörk10%
- Gróðrarstöðin Réttarhóll (plöntur)10%
- Gróðrarstöðin Þöll15%
- Húsasmiðjan10%
- Ilmbjörkin garðyrkjustöð10%
- MHG verslun15%
Sautján opnir skógar
Skógar við alfaraleið í umsjón skógræktarfélaganna, með göngustígum, áningarstöðum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu.
Smelltu á punkt til að velja skóg, og aftur til að opna síðu hans.
- 2002Daníelslundur í Borgarfirði
- 2003Hrútey við Blönduós
- 2004Snæfoksstaðir í Grímsnesi
- 2004Tunguskógur við Ísafjörð
- 2004Eyjólfsstaðaskógur á Héraði
- 2004Sólbrekkuskógur á Reykjanesi
- 2005Hofsstaðaskógur á Snæfellsnesi
- 2006Tröð við Hellissand
- 2008Hálsaskógur við Djúpavog
- 2008Akurgerði í Öxarfirði
- 2009Ásabrekka í Ásahreppi
- 2011Fossá í Hvalfirði
- 2012Laugalandsskógur á Þelamörk
- 2013Völvuskógur á Skógum undir Eyjafjöllum
- 2015Skarðsdalur á Siglufirði
- 2017Brynjudalur í Hvalfirði
- 2020Álfholtsskógur í Hvalfjarðarsveit

Sæktu jólatréð í skóginn
Skógræktarfélag Íslands tekur á móti hópum allar helgar í desember fyrir jól í Brynjudal í Hvalfirði. Hver hópur fær skógarskála með litlu báli eða samkomurjóður og velur sér tré sem passar í stofuna.
- Mæting upp í dal kl. 10:30 eða kl. 13, um klukkutíma akstur frá höfuðborginni
- Mest úrval af stafafuru, sitkagreni og rauðgreni; greinar til skreytinga innifaldar
- Starfsfólk aðstoðar við að pakka trjánum í net
Tré ársins 2026
Askur á Mógilsá undir Esjuhlíðum
Fraxinus excelsior
Tileinkað Haraldi V. Noregskonungi. Haraldur, þá krónprins, gróðursetti asktréð við vígslu Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá árið 1967, en stöðin var gjöf Norðmanna til Íslendinga. Útnefnt 22. september 2026; styrktaraðili er Lambhagi.
Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega Tré ársins til að beina sjónum að gróskumiklu starfi í trjá- og skógrækt og menningarlegu gildi einstakra trjáa. Tekið er við ábendingum allan ársins hring.
Öll Tré ársins frá 1989Fréttir
Allar fréttirStarf: Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
SÍ leitar að framkvæmdastjóra sem getur stutt félagið í að vera leiðandi afl í mótun, vernd og þróun skóga á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember.
Skógræktarfélögin á Landbúnaðarsýningunni 9.–11. október
Skógræktarfélag Íslands og skógræktarfélögin verða með í Landbúnaðarsýningunni í Laugardagshöll. Gleðilegan skóg!
Takmörkuð viðvera á skrifstofu vikuna 5.–9. október
Ef þið eigið erindi við okkur er best að hringja á undan sér eða beint í þann starfsmann sem erindið varðar.
Garðyrkjuskólinn-FSu: Námskeið – Trjáfellingar og grisjun með keðjusög
Námskeiðið er öllum opið og hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta fellingartækni sína.

Nýjasta heftið
Skógræktarritið, 1. tbl. 2026
80 ára saga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, nýr staðall um sjálfbæra skógrækt, gróðureldar og skógræktarferð til Svíþjóðar.
Eina tímaritið um skógrækt á Íslandi
Skógræktarritið hefur komið út frá stofnun félagsins árið 1930 og er aðalvettvangur skrifa íslenskra skógfræðinga og skógræktaráhugafólks. Það kemur út tvisvar á ári, á pappír eða rafrænt.




