Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Jólatré úr íslenskum skógi

Ræktun jólatrjáa er mikilvæg tekjulind skógræktarfélaganna og trén eiga það öll sameiginlegt að vera umhverfisvænn kostur. Veljum íslenskt og verslum í heimabyggð!

Jólaskógurinn í Brynjudal

Skógræktarfélag Íslands hefur frá því um 1990 stundað jólatrjáarækt í Brynjudal í Hvalfirði og tekur á móti skipulögðum hópum allar helgar fyrir jól í desember. Mörgum finnst heimsókn í skóginn ómissandi þáttur í jólahaldinu. Athugið að bókaður tími er áætlaður komutími í Brynjudal og mikilvægt að hver hópur komi saman á umsömdum tíma.

Bóka hóp

1. Dagur
desember 2026Helgar á aðventu
Má
Þr
Mi
Fi
Fö
La
Su
2. Mæting upp í dal
Tekið er á móti hópum tvisvar á dag, svo hver hópur fær sitt svæði og næði og allir finna tré í björtu.
3. Áætlaður fjöldi trjáa
20
Lágmarksfjöldi fyrir hóp er 15 tré.
Dagur ekki valinn
20 tré × 7.900 kr.158.000 kr.
Greinar (skreytiefni)Innifalið
Áætlað verð158.000 kr.

Verð 2025 var 7.900 kr. á tré, sama verð óháð tegund upp að 3 m; eftir það tekur listaverð við. Ávallt er innheimt sem nemur lágmarksfjölda, einnig ef hópur hættir við með minna en viku fyrirvara. Sýnishorn: formið sendir ekkert.

Mamma segir

Nauðsynlegt er að koma vel búinn til útivistar og skógargöngu á kaldasta tíma ársins.

  • Ullarnærföt innst klæða og hlýtt millilag
  • Góður skjólfatnaður — forðist föt sem eru að miklu leyti úr bómull
  • Góðir gönguskór og hlýir ullarsokkar
  • Húfa og vettlingar
  • Sög — og merkimiði á tréð ef komið er á rútu

Athugið að trén virðast stækka þegar heim er komið!

Fólk í jólaskóginum í Brynjudal

Hvaða tré á að velja?

Íslensku jólatrén eru fjölbreytt og falleg. Stafafura er nú komin í fyrsta sætið og rauðgreni í annað; saman eru fimm algengustu tegundirnar með rúmlega 96% markaðarins.

Stafafura

Stafafura

Eitt algengasta jólatréð sem ræktað er hérlendis. Ilmar vel, fallega grænt með langar, uppsveigðar nálar og sérlega barrheldin — svo vel að hengja má létt skraut á nálarnar sjálfar.

Rauðgreni

Rauðgreni

Í hugum margra hið eina sanna jólatré: fíngert, ilmandi og ljósgrænt. Viðkvæmt fyrir þurrki en heldur barrinu vel ef aldrei þornar í jólatrésfætinum.

Sitkagreni

Sitkagreni

Ein algengasta tegundin í íslenskri skógrækt. Djúpgrænt og getur verið mjög þéttvaxið. Stingur nokkuð og þarf góða vökvun.

Blágreni

Blágreni

Hægvaxta og með þétta, jafna krónu, oft nokkuð mjóa. Ágætlega barrheldið með blágrænan eða dökkgrænan lit.

Fjallaþinur

Fjallaþinur

Sérlega barrheldinn og ilmar mjög vel. Mjúkar nálar sem stinga nær ekkert; jöfn og þétt króna.

Jólaskógar skógræktarfélaganna

Upplýsingar frá síðustu aðventu. Nýjar dagsetningar eru settar inn jafnóðum og þær berast frá félögunum.

FélagHvarHvenær (aðventa 2025)
AkranessJólaskógur í SlöguSunnudagur 14. des. kl. 12–15
A-HúnvetningaJólatrjáasala í GunnfríðarstaðaskógiSunnudagur 14. des. kl. 11–15
ÁrnesingaJólatrjáasala að SnæfoksstöðumÞrjár síðustu helgar fyrir jól og 22.–23. des., kl. 11–16
DjúpavogsJólaskógur í Búrfellslundi í HálsaskógiSunnudagur 7. des. kl. 13–14
EyfirðingaJólaskógur í Laugalandsskógi og sala í KjarnaskógiLaugaland 13.–14. og 20.–21. des. kl. 11–15; Kjarnaskógur kl. 10–18 frá 5. des.
EyrarsveitarJólatrjáasalaEftir samkomulagi
GarðabæjarJólaskógur í SmalaholtiLaugardagur 13. des. kl. 11:30–15
HafnarfjarðarJólatrjáa- og skreytingasala í Þöll við Kaldárselsveg29.–30. nóv. kl. 11–17 og alla daga í desember til jóla kl. 10–18
ÍsafjarðarJólaskógurSunnudagur 14. des. kl. 13–15
MosfellsbæjarJólatrjáasala í Hamrahlíð við VesturlandsvegHelgar frá 6. des. kl. 10–16; virka daga frá 15. des. kl. 12–17
RangæingaJólaskógur í BolholtiSunnudagur 14. des. kl. 12–15
ReyðarfjarðarJólaskógurLaugardagur 13. des. kl. 11–13
ReykjavíkurJólamarkaðurinn á Elliðavatni og jólaskógur á HólmsheiðiElliðavatn allar aðventuhelgar kl. 12–17; Hólmsheiði síðustu þrjár aðventuhelgar kl. 11–16
SkilmannahreppsJólatrjáasala í ÁlfholtsskógiHelgin 13.–14. des. og laugardagur 20. des. kl. 12–15:30
StykkishólmsJólatrjáasala í SauraskógiLaugardagar 13. og 20. des. kl. 12–15
Fossá (Kópavogur, Mosfellsbær, Kjalarnes, Kjós)Jólatrjáasala á Fossá í HvalfirðiHelgarnar 6.–7. og 13.–14. des. kl. 11–15

Íslensk jólatré má einnig finna hjá almennum söluaðilum jólatrjáa. Einstaka skógarbændur selja jólatré sem og Land og skógur. Nordmannsþinur er innfluttur!

Finna skógræktarfélag í heimabyggð