Um félagið
Skógræktarfélag Íslands er landssamband skógræktarfélaganna í landinu, stofnað 27. júní 1930 á Alþingishátíðinni á Þingvöllum.
Meginmarkmið félagsins samkvæmt lögum þess er að vinna að framgangi skóg- og trjáræktar í landinu, að endurheimta gróðurlendi og klæða landið skógi. Félagið er málsvari skógræktarfélaganna, gætir hagsmuna þeirra og kemur fram fyrir þeirra hönd þegar þörf krefur.
Í gegnum tíðina hefur útgáfa og fræðsla til almennings skipað stóran sess í starfseminni, en einnig hefur félagið komið að margvíslegum verkefnum tengdum skógrækt, eitt og sér eða í samstarfi við aðra. Meðal þeirra má nefna Aldamótaskóga árið 2000, þar sem gróðursett var ein planta fyrir hvern Íslending, Vinaskóg á Þingvöllum og leiðbeiningarnar Skógrækt í sátt við umhverfið.
Áfangar
- 1930Stofnað á Þingvöllum. Skógræktarfélag Íslands stofnað 27. júní 1930 á Alþingishátíðinni.
- 1944Landgræðslusjóður. Stofnaður við lýðveldisstofnun að forgöngu félagsins, til að klæða landið skógi.
- 1949Fyrsta skiptiferðin. Íslenskt skógræktarfólk fór til Noregs og norskur hópur kom hingað. Sú síðasta var farin 2000.
- 1967Askurinn á Mógilsá. Haraldur krónprins gróðursetti ask við vígslu Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá.
- 1990Landgræðsluskógar. Skógræktarfélögin gróðursetja 300 þúsund til 1 milljón plantna árlega. Vinaskógur stofnaður sama ár.
- 1992Yrkja og Laufblaðið. Yrkjusjóður stofnaður og fréttablaðið Laufblaðið hóf göngu sína.
- 2002Fyrsti Opni skógurinn. Daníelslundur í Borgarfirði opnaður almenningi. Svæðin eru nú sautján.
- 2026Komin á Mógilsá. Skrifstofa félagsins flutti á Mógilsá og askurinn þar varð Tré ársins.
Stjórn 2026–2027
Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands situr stjórnarfundi.
Aðalstjórn
Varastjórn
Starfsfólk
Skrifstofa félagsins er á Mógilsá undir Esjuhlíðum. Aðalsími 551-8150.

Aðalfundur og fulltrúafundur
Aðalfundur er haldinn ár hvert. Þar er kosið í stjórn, lagabreytingar afgreiddar og fjallað um málefni sem snerta skógræktarfélögin og skógrækt almennt. Félögin skiptast á að vera gestgjafar og fundurinn er mikilvægur félagslegur vettvangur innan skógræktarhreyfingarinnar.
Aðalfundur 2026 er haldinn í Reykjavík og er Skógræktarfélag Reykjavíkur gestgjafi.
Fulltrúafundur er að jafnaði haldinn árlega, þar sem farið er yfir starfsemi aðildarfélaganna með fulltrúum þeirra og boðið upp á fræðsluerindi.
Heiðursfélagar
Frá Frederik Sandwall árið 1930 til Magnúsar Gunnarssonar árið 2023.
- Frederik Sandwall, Svíþjóð1930
- Torgeir Anderssen-Ryst1949
- Reidar Bathen1949
- Guttormur Pálsson1955
- Hólmjárn J. Hólmjárn1957
- Harald Hope1960
- Valtýr Stefánsson1961
- Gunnlaugur Briem1965
- Eiríkur Hjartarson1965
- Nils Ringset, Noregi1968
- Ludvig G. Braathen, Noregi1968
- Jón Rögnvaldsson1970
- Ármann Dalmannsson1970
- Guðmundur Marteinsson1974
- Daníel Kristjánsson1975
- Toralf Austin, Noregi1976
- Hákon Bjarnason1977
- Guðrún Bjarnason1977
- Hans Berg, Noregi1977
- Þórarinn Þórarinsson1981
- Vigdís Finnbogadóttir1984
- Jóhann Þorvaldsson1985
- Wilhelm Elsrud, Noregi1986
- Sigurður Blöndal1989
- Guðrún Sigurðardóttir1989
- Óli Valur Hansson1995
- Sveinbjörn Dagfinnsson1999
- Olof Aalde, Noregi1999
- Snorri Sigurðsson1999
- Hulda Valtýsdóttir2000
- Jónas Jónasson2000
- Markús Runólfsson2000
- Karl Eiríksson2005
- Páll Samúelsson2005
- Hólmfríður Finnbogadóttir2006
- Óskar Þór Sigurðsson2010
- Gísli Gestsson2012
- Þorsteinn Tómasson2015
- Þorvaldur S. Þorvaldsson2019
- Elísabet Kristjánsdóttir2019
- Magnús Jóhannesson2022
- Magnús Gunnarsson2023


Merki félagsins
Merkið fæst án texta, með nafni félagsins og með nafni félagsins á ensku. Hafið samband við skrifstofuna til að fá merkin.