Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Útgáfa og fræðsla

Samkvæmt lögum félagsins er eitt af meginmarkmiðum þess að veita fræðslu um skóg- og trjárækt og gildi þess fyrir þjóðfélagið, enda er þekking grundvallaratriði þess að ná góðum árangri í skógrækt.

Skógræktarritið 2026, 1. tbl.

Skógræktarritið

Skógræktarritið (áður Ársrit Skógræktarfélags Íslands) er eina tímaritið um skógrækt á Íslandi. Þar er fjallað um tiltekna skóga, staði og trjátegundir, ræktun og ræktunarskilyrði, skipulag skógræktar, rannsóknir, ferðasögur, viðtöl og margt fleira — bæði fyrir fagmanninn og áhugamanninn í sumarbústaðnum eða heimilisgarðinum.

Gerast áskrifandi

Áskrifendur styrkja skógrækt og gera það kleift að halda úti vönduðu riti. Nýir áskrifendur fá tvö hefti að gjöf!

Tegund áskriftar
Ritið kemur út tvisvar á ári. Póstburðargjald leggst ofan á.

Nýir áskrifendur fá tvö hefti að gjöf. Sýnishorn: formið sendir ekkert.

Laufblaðið

Fréttablað Skógræktarfélags Íslands, sent félögum í skógræktarfélögunum. Það hóf göngu sína árið 1992 og hefur komið samfellt út síðan — í upphafi prentað í tveimur litum en nú „í öllum litum flórunnar“. Frá 2011 er því dreift rafrænt.

20262025202420232022202120202019201820172016201520142013201220112010200920082007200620052004200320022001200019991998199719961995199419931992

Frækornið

Lítill fjórblöðungur um afmarkaða þætti skógræktar: einstakar trjátegundir, ræktun við tiltekin skilyrði, plágur, jólatré, fræsöfnun og margt fleira. Hakaðu við þau sem þú vilt panta.

Tækifæriskort

Kortin eru auð að innan og nýtast sem jólakort, afmæliskort, boðskort eða hvað sem fólki dettur í hug. Seld tíu saman í búnti með umslögum á 3.000 kr.

Kort 2024
10 kort í búnti með umslögum
1
3.000 kr.
Panta kort

Fræðsluferðir

Félagið hefur um áratugaskeið staðið fyrir fræðsluferðum til annarra landa. Fyrstu áratugina voru það skiptiferðir til Noregs (1949–2000), en síðan almennar kynnisferðir um skóga, náttúru, sögu og menningu, oft á fáfarnari slóðir.

Skógræktarferð ársins 2026 er til Noregs.

Úr skógræktarferð til Noregs 2026
  • 2026Noregur
  • 2025Svíþjóð
  • 2024Frakkland
  • 2023Króatía
  • 2022Marokkó
  • 2019Ítalía
  • 2018Spánn
  • 2017Breska-Kólumbía
  • 2016Frakkland
  • 2015Pólland
  • 2014Noregur
  • 2013Colorado
  • 2012Þýskaland
  • 2011Skotland
  • 2010Færeyjar
  • 2009Noregur
  • 2008Kamtsjatka
  • 2007Sviss
  • 2006Arkhangelsk
  • 2005Nýfundnaland
  • 2003Írland
  • 2002Finnland
  • 2001Alaska
  • 2000Noregur
  • 1999Austurríki
  • 1997Skotland
  • 1992Danmörk

Hvernig fæ ég tré úr köngli?

  1. Bíddu þar til köngullinn opnast — þá eru fræin tilbúin.
  2. Settu fræin í lítið pappírsumslag og geymdu í ísskáp fram í byrjun maí.
  3. Settu góða mold í lítið ílát með götum í botninum, nokkur fræ í hvert og sáldraðu léttri mold yfir.
  4. Láttu ílátið standa í vatnsskál í 5–10 mínútur svo moldin sjúgi vatn neðan frá.
  5. Settu plastpoka yfir og láttu standa í glugga — þó ekki suðurglugga. Loftaðu einu sinni á dag og haltu moldinni rakri.
  6. Fræið fer að spíra á 2–4 vikum. Þegar plantan lætur sjá sig má fjarlægja pokann.

Svo er bara að fikta, prófa og læra — og taka þátt í starfi skógræktarfélaganna!

Klofinn köngull í Heiðmörk

Skógræktarnámskeið fyrir byrjendur

Fjórir hlutar á YouTube-rás félagsins: skógarplöntur, ytri áhrif og plöntuval, undirbúningur, framkvæmd og skráning.

Horfa á YouTube