Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Verkefni

Skógræktarfélag Íslands kemur að eða annast ýmis verkefni tengd skógrækt, í samvinnu við einstök skógræktarfélög, önnur samtök eða sjóði, fyrirtæki eða einstaklinga, bæði innanlands og utan.

Gróðursetning í Landgræðsluskógi

Landgræðsluskógar

Landgræðsluskógar eru umfangsmesta skógræktar- og uppgræðsluverkefni skógræktarfélaganna. Allt frá árinu 1990 hafa félögin séð um gróðursetningu á 300 þúsund til 1 milljón trjáplantna árlega á vegum verkefnisins.

Ræktunarsvæðin eru víðsvegar um landið, vel á annað hundrað samningsbundin svæði, sum þar sem skilyrði til skógræktar eru hvað best og önnur þar sem þau eru mjög erfið, t.d. út við ströndina. Á öllum er stefnt að því að koma upp vöxtulegum gróðri, græða land og auðga.

Samstarfsaðili skógræktarfélaganna í Landgræðsluskógum er Matvælaráðuneytið. Svæðin eru öll opin almenningi.

Yrkja — sjóður æskunnar

Yrkja úthlutar grunnskólabörnum trjáplöntum til gróðursetningar. Árlega gróðursetja á milli sjö og átta þúsund grunnskólanemar, frá í kringum hundrað skólum víðs vegar af landinu, tré á vegum sjóðsins.

Yrkjusjóður var stofnaður árið 1992. Stofnféð var afrakstur sölu bókarinnar Yrkju, sem gefin var út í tilefni sextugsafmælis frú Vigdísar Finnbogadóttur. Sjóðurinn hefur eigin stjórn en Skógræktarfélag Íslands hefur umsjón með honum.

Auglýst er eftir umsóknum snemma á hverju ári. Allir grunnskólar landsins geta sótt um tré, hvort sem er til gróðursetningar að vori eða hausti.

yrkja.is
Grunnskólabörn gróðursetja tré
Nýgróðursett fura á Úlfljótsvatni

Kolviður

Kolviður er sjóður sem miðar að því að gera almenningi kleift að binda kolefni í gróðri og jarðvegi á móti losun sinni. Tilgangurinn er að hjálpa til við að draga úr styrk koldíoxíðs (CO₂) í andrúmslofti.

Stofnaðilar Kolviðar eru Skógræktarfélag Íslands og Landvernd. Á Úlfljótsvatni er meðal annars ræktað samkvæmt samningi við Kolvið.

kolvidur.is

Vinaskógur

Vinaskógur var stofnaður árið 1990 í tilefni Landgræðsluskógaátaksins. Hann er í landi Kárastaða, í nágrenni Þingvalla, og er ætlað að minna á mikilvægi vináttu og friðar meðal manna.

Þar hafa heimsþekktir gestir gróðursett tré, m.a. fjölmargir þjóðhöfðingjar og fulltrúar erlendra ríkja og alþjóðlegra stofnana. Forseti Íslands er verndari Vinaskógar.

Gróðursetning í Vinaskógi
Sjálfboðaliðar við gróðursetningu á Úlfljótsvatni

Sjálfboðaliðar

Frá árinu 2015 hefur félagið tekið á móti erlendum sjálfboðaliðum Erasmus+ áætlunarinnar, nú í gegnum European Solidarity Corps. Árlega koma fimm sjálfboðaliðar frá jafnmörgum Evrópulöndum og dvelja í fimm mánuði, einkum við gróðursetningu á Úlfljótsvatni og umhirðu eldri reita víða um land.

Félagið hefur gæðavottun (Quality Label) European Solidarity Corps. Einnig koma 2–3 hópar á vegum Working Abroad á hverju sumri, auk sjálfboðaliða frá Seeds og Veraldarvinum.

Umsjón: Vito Famà, vito@skog.is

Landgræðslusjóður

Landgræðslusjóður var stofnaður árið 1944 fyrir atbeina landsnefndar lýðveldiskosninganna og að forgöngu Skógræktarfélags Íslands, til minningar um stofnun lýðveldis á Íslandi. Meginhlutverk hans er að klæða landið skógi, en önnur landgræðsla og gróðurvernd er einnig á verksviði sjóðsins.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna einstaklinga, stofnana og félaga. Umsóknarfrestur fyrir árið 2026 var til og með 27. mars.

Styrkþegar 2026

  • Skógræktarfélag Akraness
  • Skógræktarfélag Árnesinga
  • Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga
  • Skógræktarfélag Dalasýslu
  • Skógræktarfélag Eyfirðinga
  • Skógræktarfélag Garðabæjar
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
  • Skógræktarfélag Húsavíkur
  • Skógræktarfélag Íslands
  • Skógræktarfélag Kjalarness
  • Skógræktarfélag Mosfellsbæjar
  • Skógræktarfélag Ólafsfjarðar
  • Skógræktarfélag Rangæinga
  • Skógræktarfélag Reykjavíkur
  • Skógræktarfélag skáta við Úlfljótsvatn
  • Skógræktarfélag Stykkishólms

Hvatningarverðlaun skógræktar

Verðlaunin eru veitt árlega til að hvetja til dáða einstaklinga, hópa, fyrirtæki, félög eða stofnanir sem vinna óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Að þeim standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (skógarbændur).

Tekið er á móti tilnefningum hvenær árs sem er. Verðlaununum er úthlutað á alþjóðlegum degi skóga, 21. mars.

Senda tilnefningu

750 slög eftir af 750
500 slög eftir af 500

Sýnishorn: formið sendir ekkert.

Græni trefillinn

Græni trefillinn er samheiti yfir skógræktar- og útivistarsvæði á útmörk sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu, staðfestur í Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins árið 2002.

Að beiðni aðalfundar 2004 hafði Skógræktarfélag Íslands forgöngu um verkefnið í samstarfi við skógræktar- og sveitarfélög. Megintillagan var að leggja Græna stíginn eftir Græna treflinum endilöngum, sem tengir saman útivistarsvæðin og gerir trefilinn að einni heild.

Úlfljótsvatnsbærinn

Úlfljótsvatn og Brynjudalur

Félagið stundar sjálft skógrækt á tveimur svæðum. Úlfljótsvatn á félagið með Bandalagi íslenskra skáta og Skátasambandi Reykjavíkur; þar er Landgræðsluskógur, ræktun samkvæmt samningi við Kolvið og eldri gróðursetningar grunnskóla Reykjavíkur á vegum Yrkju.

Í Úlfljótsvatnsbænum rekur félagið lítið gistiheimili sem er opið ferðamönnum frá október til byrjun maí.

The Lake House of ÚlfljótsvatnBrynjudalur