Brynjudalur í Hvalfirði
- Opinn skógur frá 2017
- Í umsjá Skógræktarfélags Íslands
Um skóginn
Tvö skjólhýsi eru í skóginum, Tjaldið og Höllin. Helstu áningarrjóður eru Hvammurinn og Fururjóðrið, þar sem er þrautabraut. Í skóginum má finna aðalbláber, bláber, krækiber og hrútaber.
Saga og skógrækt
Fyrstu jólatrén voru gróðursett rétt fyrir 1980. Frá um 1990 hefur Skógræktarfélag Íslands lagt áherslu á ræktun jólatrjáa og útivistaraðstöðu í dalnum.
Aðkoma
Um klukkutíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Stígar eru upphaf gönguleiða um Leggjarbrjót til Þingvalla, upp á Botnssúlur og yfir í Botnsdal að Glym.
Aðstaða
- Göngustígar
- Skjólhýsi
- Þrautabraut
- Berjaland
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.