Skarðsdalur á Siglufirði
- Opinn skógur frá 2015
- Í umsjá Skógræktarfélags Siglufjarðar
Um skóginn
Nyrsti plantaði skógur á Íslandi. Gott kerfi göngustíga liggur um skóginn. Minningarskjöldur um Jóhann Þorvaldsson ber áletrunina „Að gefast upp kom aldrei til greina“.
Saga og skógrækt
Fyrstu plönturnar voru gróðursettar 1951 og fram til 1980 rúmlega 100 þúsund trjáplöntur, mest af siglfirskum unglingum.
Aðkoma
Í Skarðdal ofan Siglufjarðar; vegslóði liggur upp í rjóðrið við Leyningsá.
Aðstaða
- Göngustígar
- Skógarhús
- Bekkir
- Jólatrjáasala
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.