Völvuskógur á Skógum undir Eyjafjöllum
- Opinn skógur frá 2013
- Í umsjá Skógræktarfélags Rangæinga
Um skóginn
Um 10 ha fjölbreyttur skógur með glæsilegum gömlum trjám. Sitkagreni og alaskaösp slaga víða í 20 metra hæð. Göngubrýr og tröppur eru smíðaðar úr grisjunarvið úr skóginum sjálfum.
Saga og skógrækt
Skógrækt á Skógum hófst vorið 1950 fyrir tilstuðlan Jóns Jóseps Jóhannessonar kennara og nemendur Skógaskóla gróðursettu á vorin.
Aðkoma
Við Skóga undir Eyjafjöllum. Þrasastígur og Vargaslóð eru talsvert á fótinn en aðrar leiðir greiðfærar flestum.
Aðstaða
- Göngustígar
- Göngubrýr
- Trjámerkingar
- Áningarstaðir
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.