Daníelslundur í Borgarfirði
- Opinn skógur frá 2002
- Í umsjá Skógræktarfélags Borgarfjarðar
Fyrsti skógurinn sem opnaður var sem Opinn skógur.
Um skóginn
Daníelslundur ber nafn Daníels Kristjánssonar, skógarvarðar frá Hreðavatni, sem lengi var forvígismaður í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar. Lundurinn er í landi Svignaskarðs, sem eitt sinn var í eigu Snorra Sturlusonar, í hjarta Borgarfjarðarhéraðs. Þaðan er víðsýnt: Hafnarfjall og Skarðsheiði í suðri, Baula í norðri og Eiríksjökull í austri.
Saga og skógrækt
Skógræktarfélag Borgarfjarðar hóf skógrækt á svæðinu árið 1961 á 25 hektara spildu. Árið 1978 var landið stækkað og nafninu breytt úr Svignaskarðsgirðingu í Daníelslund, til heiðurs Daníel sjötugum. Mesta athygli vekur að efst á klapparholtinu, sem margir héldu að væri ekki trjáplöntum bjóðandi, vex trjágróður ágætlega.
Aðkoma
Í alfaraleið við þjóðveg nr. 1. Tenging er frá þjóðveginum að hringtorgi í skógarjaðrinum þar sem eru góð bifreiðastæði.
Aðstaða
- Göngustígar
- Bekkir og borð
- Grill
- Bílastæði
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.