Hrútey við Blönduós
- Opinn skógur frá 2003
- Í umsjá Skógræktarfélags A-Húnvetninga
Um skóginn
Hrútey er umlukin jökulánni Blöndu og skartar fjölbreyttum gróðri; mest ber á trjágróðri og lyngmóum, birki og stafafuru. Fuglalíf er auðugt og gæsin á griðland í eyjunni. Hrútey var friðuð sem fólkvangur árið 1975.
Saga og skógrækt
Hrútey var friðuð fyrir búfé árið 1933. Vorið 1942 hófst skógrækt í eyjunni og voru fyrstu trén gróðursett af skátafélaginu á Blönduósi. Núverandi göngubrú var tekin í notkun árið 1988.
Aðkoma
Í alfaraleið við þjóðveg nr. 1. Góð bifreiðastæði eru við árbakkann og traust göngubrú út í eyjuna. Stutt er til sjávar eftir göngustíg meðfram ánni.
Gestum er bent á að fara um með sérstakri gát við árbakkana.
Aðstaða
- Göngustígar
- Bekkir og borð
- Göngubrú
- Bílastæði
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.