Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Snæfoksstaðir í Grímsnesi

  • Opinn skógur frá 2004
  • Í umsjá Skógræktarfélags Árnesinga

Um skóginn

Opinn skógur við Kolgrafarhól á Snæfoksstöðum. Á Kolgrafarhóli er útsýnisskífa. Jörðin er 749 ha og þar vex nú upp skógur á hundruðum hektara; hæstu lundirnir eru í Skógarhlíð á bökkum Hvítár.

Saga og skógrækt

Skógræktarfélag Árnesinga keypti jörðina árið 1954 og fyrst var gróðursett sumarið 1956. Frá 1958 unnu börn og unglingar frá Selfossi við gróðursetningu í tólf ár og þá var skógurinn við Kolgrafarhól gróðursettur.

Aðkoma

Tenging er frá Biskupstungnabraut að hringtorgi í skógarjaðrinum, þar sem eru góð bifreiðastæði.

Aðstaða

  • Göngustígar
  • Útsýnisskífa
  • Bekkir og borð
  • Bílastæði

Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.