Tunguskógur við Ísafjörð
- Opinn skógur frá 2004
- Í umsjá Skógræktarfélags Ísafjarðar
Um skóginn
Í skjólgóðum dalnum er mikil veðursæld. Lengi hefur verið vinsælt að fara „inn í skóg“ á sumrin í gönguferðir, berja- og sveppatínslu. Skógurinn er nú einn vöxtulegasti skógur Vestfjarða.
Saga og skógrækt
Gróðursetning hófst árið 1950, mest innan Bunár 1955–1965. Sitkagreni og hvítsitkagreni hafa vaxið sérstaklega vel. Í dalnum er líka Simsonsgarður, sem Martinus Simson ánafnaði Skógræktarfélagi Ísafjarðar.
Aðkoma
Í Tungudal, vestastur þriggja dala inn af Skutulsfirði. Þar eru sumarhús, tjaldsvæði, golfvöllur og skíðasvæði.
Aðstaða
- Göngustígar
- Bekkir og borð
- Berja- og sveppaland
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.