Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Ásabrekka í Ásahreppi

  • Opinn skógur frá 2009
  • Í umsjá Skógræktarfélags Rangæinga

Um skóginn

Um 2,2 ha reitur. Ágætis stígur liggur í hring í gegnum skóginn, tilvalinn til léttra gönguferða. Birki og sitkagreni í brekkunum, fura og lerki á flatlendinu.

Saga og skógrækt

Reiturinn var girtur af árið 1954; landið gáfu Stefán og Ingvaldur Ólafssynir í Áshól. Gróðursett var 1954–1959 og aftur 1988, alls 16–17 þúsund plöntur.

Aðkoma

Í landi Áshóls í Ásahreppi.

Aðstaða

  • Hringstígur
  • Trjámerkingar
  • Upplýsingaskilti
  • Bekkir og borð

Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.