Akurgerði í Öxarfirði
- Opinn skógur frá 2008
- Í umsjá Skógræktarfélags N-Þingeyinga
Um skóginn
Um 13 hektara skógur þar sem margar trjátegundir frá ólíkum stöðum í heiminum hafa náð góðum þroska. Mikið er af fuglum, blómplöntum og sveppum og ágæt berjaspretta. Unnið er að trjásafni meðfram göngustígum.
Saga og skógrækt
Skógrækt hófst á 6. áratugnum og byrjað var að grisja um 1990.
Aðkoma
Í landi prestssetursins Skinnastaða í Öxarfirði.
Aðstaða
- Göngustígar
- Trjásafn
- Upplýsingaskilti
- Bekkir og borð
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.