Fossá í Hvalfirði
- Opinn skógur frá 2011
- Í umsjá Skógræktarfélagsins Fossá
Um skóginn
Skjólgott svæði með fossum og flúðum Fossár, Kálfadal, einstakri kræklingafjöru undan Fossárósum og berjalandi með því besta á góðum berjasumrum. Jörðin er 1.100 hektarar.
Saga og skógrækt
Skógræktarfélögin keyptu jörðina árið 1972 og hafa síðan gróðursett um 900.000 plöntur, mest greni, furu og birki.
Aðkoma
Í Hvalfirði. Gönguleiðir að Vindáshlíð (Gíslagata) og Reynivöllum (Kirkjustígur) eru greiðfærar frá Fossá.
Aðstaða
- Göngustígar
- Kræklingafjara
- Berjaland
- Jólatrjáasala
Mikilvægt er að gönguleiðum sé fylgt og viðkvæmum gróðri hlíft.