Skógræktarfélag Íslands (SÍ) er landssamband skógræktarfélaga um land allt og vinnur að eflingu skógræktar í þágu almennings. Framkvæmdastjóri SÍ ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, framkvæmd stefnu stjórnar og faglegri forystu í starfsemi tengdri skógrækt, umhverfismálum, útivist og félagastarfi.
Leiðarljós framkvæmdastjóra er að gera SÍ að öflugum málsvara aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum og í samfélagsumræðunni, draga fram samfélagslegt verðmæti skóga og vinna að því að gera skógana aðgengilega almenningi.
Helstu verkefni
- Yfirumsjón með daglegum rekstri, fjármálum og starfsmannahaldi félagsins.
- Kynningar- og fræðslustarf um skógrækt og gildi hennar fyrir samfélag og náttúru.
- Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld, styrktar- og samstarfsaðila.
- Framkvæmd ákvarðana og stefnu stjórnar.
- Undirbúningur og eftirfylgni funda stjórnar- og aðalfunda.
- Umsjón með verkefnum tengdum skógrækt.
- Öflun rekstrarfjár, umsjón með samningum og styrkumsóknum.
- Gerð ársskýrslna, fjárhagsáætlana og annarra skýrslna um starfsemina.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri, gjarnan í félagasamtökum eða opinberum rekstri.
- Áhugi á skógræktarstarfi er skilyrði.
- Leiðtogahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi sjálfboðaliða og fagfólks.
- Færni í verkefnastjórnun, mannlegum samskiptum og samningagerð.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Launakjör eru samkvæmt samkomulagi milli stjórnar SÍ og umsækjanda. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember nk. Umsóknir sendist á skog@skog.is. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Bollason, formaður stjórnar.