
Þar sem vindurinn fékk áður að leika lausum hala við Úlfljótsvatn eru nú skógur og skjólbelti sem hafa breytt ásýnd og loftslagi. Ævintýrið hófst einn sumardag fyrir 40 árum, þegar hópur skáta og fjölskylda Helga Tómassonar fv. skátahöfðingja hóf gróðursetningarátak.
Gróðursett var í fyrsta lundinn 5. júlí 1986 og var hann kenndur við Helga Tómasson. Skógræktarfélag skáta að Úlfljótsvatni var stofnað árið 1987 og starfar enn. Skógræktarfélag Íslands hefur staðið að ræktunarstörfum á jörðinni undanfarin mörg ár.
Tímamótanna er minnst með táknrænni gróðursetningu í lundi Helga sunnudaginn 5. júlí kl. 14:00. Boðið verður upp á veitingar í gamla Gilwellskálanum.