Tré ársins 2026 verður formlega útnefnt við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 22. september á Mógilsá undir Esjuhlíðum. Að þessu sinni verður tréð tileinkað Haraldi V. Noregskonungi sem lést nýlega og var jarðsunginn með viðhöfn.
Haraldur, sem þá var krónprins Noregs, gróðursetti asktré við vígsluathöfn þegar bygging Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá var vígð árið 1967, en stöðin var á þeim tíma gjöf Norðmanna til Íslendinga.
Athöfnin hefst kl. 16:00 þegar fulltrúi Norska sendiráðsins á Íslandi afhjúpar skilti um tréð, en auk þess verður tréð mælt og vegið. Ávörp flytja Sverrir Bollason, formaður Skógræktarfélags Íslands, Marianne Kvan frá Norska sendiráðinu, Jóhannes Benediktsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, og Sara Hafbergsdóttir frá Lambhaga. Tindatríó flytur tónlist.
Veitingar í boði Skógræktarfélags Íslands og Lambhaga. Allir velkomnir! Styrktaraðili Trés ársins er Lambhagi ehf.