Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Skógræktarfélag Íslands — unnið af Vefsíðu. Form senda engar upplýsingar.

Nýtt skógarskýli í Sólbrekkuskógi

Nýtt skógarskýli í Sólbrekkuskógi á Suðurnesjum var formlega vígt laugardaginn 20. júní. Uppbyggingu þess má rekja aftur til 2019, þegar Skógræktarfélag Íslands sótti um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til hönnunar þess, með það í huga að reisa það í einum af Opnum skógum landsins.

Styrkur til byggingar fékkst vorið 2021. Lengri tíma tók að reisa skýlið en ráð var fyrir gert, einna helst vegna jarðeldanna í nágrenninu sem ítrekað lokuðu fyrir aðkomu að svæðinu. Reykjanesbær tekur við skýlinu og sér um umhirðu og eftirlit til frambúðar.

Kristján Bjarnason, formaður Skógræktarfélags Suðurnesja, nefndi í ávarpi að hæsta tré í Sólbrekkuskógi hefði verið mælt deginum áður: sitkagreni, 20,6 m hátt — tíðindi, þar sem lengi var talið að ekki þýddi að rækta tré á þessum hrjóstuga skaga.